|
||||||||||||||||||
Vöruval
Kæru viðskiptavinir. Hjá okkur færðu dásamlega heita rétti, súpur, nýbökuð brauð og
fjölbreytt meðlæti, ásamt því að geta tekið með ykkur hinar ýmsu kræsingar úr
kæliborðinu til að skella í ofninn eða á pönnuna. Til viðbótar þessu höfum við þó nokkuð úrval af góðum lífrænum vörum til að gera matargerðina léttari, þægilegri og hollari. Vöruval lífrænna vara, í hillum Krúsku, leggja grunninn að góðri matargerð. Má nefna hrísgrjón, íslenska byggið, frábærar olíur, balsamik, þurrkaða ávexti, spelthveiti , margskonar hnetur og möndlur og sitthvað fleira í baksturinn. Einnig höfum við til sölu íslenskt grænmeti og salöt, góða ávaxta- og grænmetissafa sem og berjasmoothie til að grípa með sér í vinnuna eða heim.
Síðast en ekki síst seljum við hinar frábæru, íslensku mjólkurvörur frá Bíóbúi en þeir hafa nýlega sett á markaðinn lífrænt skyr og þá bestu lífrænu jógúrt sem völ er á.
|
![]() |
|||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||
|
Krúska - Suðurlandsbraut 12 - 108 Reykjavík - Sími: 557-5880 - kruska@kruska.is
| ||||||||||||||||||