Forsíða ViðVöruvalFræðslaUppskriftirMatseðillSkráning á póstlista
Við

KRÚSKA – STEFNA OG MARKMIÐ - Berum ábyrgð á eigin heilsu.

Krúska er verslun og matstofa sem býður upp á úrvals grænmetis- og kjúklingarétti auk þess sem þar eru seldar vottaðar lífrænar afurðir.
Lífrænt hráefni er notað í grunninn í matargerð okkar. Við notum ekki hvítt hveiti, hvítan sykur, auka-og/eða bragðefni í matargerðina.
Hrásykur er einungis notaður í eftirrétti. 
Krúska mun taka þátt í að efla fjölbreytni í lífrænni ræktun á Íslandi í samvinnu við bændur og vill verða leiðandi fyrirtæki í þróun og framreiðslu á hollum og góðum mat.
Krúska mun leggja sitt af mörkum til fræðslu m.a. með námskeiðshaldi og fræðandi heimasíðu.
Við erum í góðri samvinnu við bændur sem stunda lífræna ræktun.

Krúska: Gerir lífið léttara.

Krúska er í eigu Náttúrulækningafélags Íslands og tengdra aðila.
Náttúrulækningafélag Íslands var stofnað árið 1937 og hefur m.a. stuðlað að því að almenningur hafi aðgang að hollum og góðum mat. Megintilgangur félagsins er ,,Að efla og útbreiða þekkingu á lögmálum heilbrigðs lífs og á heilsusamlegum lifnaðarháttum".

Kjörorð Náttúrulækningafélags Íslands er "Berum ábyrgð á eigin heilsu"
Hér má lesa lög félagsins (
http://www.nlfi.is/log_nlfi.lasso )

Snemma á síðustu öld hóf Náttúrulækningafélag Íslands innflutning á hollustuvörum og rak frá árinu 1944 matstofu í nokkra áratugi.

Opnun verslunarinnar Krúsku er mikilvægur þáttur í framþróun félagsins.
Krúska - Suðurlandsbraut 12 - 108 Reykjavík - Sími: 557-5880 - kruska@kruska.is