14.4.2009 13:55
Heimalagaður hummus
lagaður úr kjúklingabaunum
gott að borð hummus með radísum, sellerístönglum og öðru hráu grænmeti400 gr af soðnum kjúklingabaunum
2 msk tahini(sesamsjör)
1 msk sítrónusafi
1 stk hvítlauksgeiri
Salt og 1 msk soyjasósa
1 msk ólífuolía
Hnífsoddur af cayennapipar
Fullt af ferskri steinselju
Setja allt í matvinnsluvélina og mauka vel eða þar til að hráefnið er hefur mjúka áferð.Mögulega þarf að bæta smá vatni saman við án þess þó að hafa kæfuna þunna.
Þessi uppskrift er sú best sem ég hef prófað en svo er um að gera að breyta til og setja sólþurrkaða tómata saman við eða nota hnetusmjör í stað thaini
Gott að borða með hrátt grænmeti eins og gulrætur , radísur og selleristöngla.
Til baka
|
 |