14.4.2009 13:47
Jamakia svartbaunapottréttur
Góður réttur með kús-kús salati eða hýðishrísgrjónum. 250 gr af soðnum svötum baunum(sjá meðhöndlun bauna)
1 msk olía
1 stór laukur smátt saxaður
1 hvítlaukur smátt saxaður
1 tsk sinnepsduft
2 msk agavesýróp
1 msk soyjasósa
½ tsk chilli duft
1 tsk broddcumin
1 rauð paprika smátt skorinn
1 gul paprika smátt skorinn
1 stk sæt kartafla smátt skorinn
Salt og pipar
1 krukka af lífrænni tómatasósu
Smá vatn þó þannig að sósan sé sæmilega þykk
Aðferð.
Létt steikja laukinn, hvítlauk , krydd, papriku og sæta kartöflu .
Malla í góðan tíma á lágum hita eða þar til að laukurinn og paprika er orðin mjúk
Setja útí tómatsósuna og vatn og baunirnar og halda áfram að malla í 15 mín. Bragbæta og smakka til með sýrópi og soyjasósu. Saxa fullt af ferskum jurtum og setja saman við.
Til baka
|
 |