14.4.2009 10:25
Einfalt kús-kús salat með möndlum
250 gr kús-kús í skál
55o ml af sjóðandi heitu vatni sett saman við og breiðið yfir.
Leyft að standa í 10 mín . Hrærið í eftir á það á að lofta um kornið.
Saxið handfylli af ristuðum möndlum
2 stk tómata smátt saxaðir
1 stk agúrku sem er búið að skræla og skera þversum og fræhreinsa Síðan söxuð smátt.
Hálf púrra sneidd niður í örþunnar strimla.
Blandið grænmetinu saman við kornið og hellið sósunni saman við rétt undir lokin koma möndlurnar sem gera mikið en ekki nauðsyn.
Sósan er 4 msk ólífuolía
1 msk sítrónusafi
Söxuð steinselja 2 msk
1 tsk broddkumen
Hnífsoddur af cayennapipar
Salt eftir smekk
Þeytið saman olíu og kryddin og hrærið út í kornið
Til baka
|
 |