14.4.2009 10:14
Egypskur grænmetisréttur
fyrir 4-6manns
Hollt fyrir hjarta og magaOlía til steikinga
200 -300 gr af soðnum linsubaunum eða svörtum baunum
1 stk rauð paprika fræhreinsuð og skorin í þunna strimla
1 stk laukur smátt saxaður
4 tómatar skornir í báta
2 hvítlaukar marðir og saxaðir
3 stk vorlaukar smátt saxaðir
2 msk saxað steinselja
2 msk söxuð mynta
2 msk sxaður kóríander
Salt og pipar
1 tsk cayennapipar
Smá sítrónusafi
1 krukka af góðri tómatasósu
Aðferð
Steikja grænmetið í olíu þar til að það er mjúkt , krydda það til með þurrkryddum og síðan koma soðnu baunirnar saman við og krukka af góðri tómatasósu ásamt sítrónusafa og ferskum kryddum,
Leyfið réttinum að malla og blandast vel saman. Berið fram skreyttan með vorlauk og góðu hvítlauksbrauði.
Til baka
|
 |