Forsíða ViðVöruvalFræðslaUppskriftirMatseðillSkráning á póstlista
14.4.2009 09:29
Karabískur núðluréttur
Dásamlega gott með heimagerðu hvítlauksbrauði.
  • 450 gr núðlur hvað tegund sem hentar en best þykja mér Sobanúðlur
  • 2-4 msk olía
  • 1 stk stór sæt kartafla afhýdd og skorinn í strimla fingurstóra
  • 2 stk gulrætur skorinn í strimla
  • 1 stk laukur skorinn í báta
  • Helmingur af hálfum haus hvítkál smátt saxað í þunna strimla
  • 2 vorlaukar smátt saxaðir (rétturinn er skreyttur með vorlauknum)
  • 1 paprika hvaða litur sem er skorinn i þunna strimla
  • Handfylli af sætum grænum baunum helmingaðar.
  • 2 msk rifinn engifer og er safinn kreistur útí réttinn
  • 1 hvítlauksgeiri Salt og 1 tsk smá cayennapipar
  • 1 msk tamarisósa(lífræn soyjasósa)
  • ½ dós af kókósmjólk .Hrista hana áður. sett útí rétt undir lokin
  • Aðferð:
  • Sjóða núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum og kæla niður. Setja til hlíðar á meðan grænmetið er að steikjast. Skerið núðlurnar í sundur nokkrum sinnum. Auðveldara að blanda þeim saman við grænmetið þannig. Hita olíuna vel og byrja á því að létt steikja laukinn og hvítlauk síðan sætu kartöflurnar mögulega þarf að bæta við olíu og hitinn á ekki að vera mjög mikill. Síðan kemur restin af grænmetinu og undir lokinn er kókosmjólkin sett saman við og núðlurnar. Skreyta með kóríander og lime bátum og vorlauk.


    Til baka
  • Krúska - Suðurlandsbraut 12 - 108 Reykjavík - Sími: 557-5880 - kruska@kruska.is