8.4.2009 10:04
Marókósur pottréttur
Veljið góðan kús-kús rétt með þessum hérna . Helst fullan af apríkósum1 stk laukur skorinn í gróflega munnbita
3 stk hvítlauksgeirar smátt saxaðir
1 tsk tímían
600 gr kartöflur skornar i fjóra bita hver
150 gr frosnar grænar baunir
1 stk paprika skorin i gróflega bita
400 gr gróflega skornir tómatar
1 glerkrukka lífræn tómatasósa
400 ml grænmetis soð
1 stk smátt skorið fennel
½ krukka svartar ólífur
1 tsk turmerik
1 msk sítrónusafi
Handfylli af smátt saxað steinselja
Salt og pipar
Handfylli af ristuðum söxuðum möndlum til að strá yfir réttinn
Aðferð:
Létt mýkja lauk og hvítlaukinn í olíunni , kartöflur og annað grænmeti sett útí og krydda ásamt grænmetissoðinu og sjóðið í meðalhita í 20 mín.
þegar grænmetið er soðið þá að setja ólífurnar út í réttinn, sítrónusafa steinselju og kryddið til.
Gott grænt salat er gott með þessum
Stráið ristuðum möndlunum yfir áður en rétturinn er borinn fram.
Til baka
|
 |