Forsķša VišVöruvalFręšslaUppskriftirMatsešillSkrįning į póstlista
Fręšsla

 

Olíur

Þegar kemur að olíum í matargerð eða inntöku  hafið þá endilega  í huga að velja góðar olíur, sem eru lífrænar, því þá eruð þið örugg með að þær séu ekki erfðabreyttar.

Byrjum á ólífuolíunni

Eins og svo margar góðar afurðir hefur  hún hefur verið á boðstólum manna í þúsundir ára. Varðandi ólífuolíuna, þá eru þær bestar dökkgrænar og í dökkum flöskum (til að verjast dagsljósinu) og kaldpressaðar(first cold pressed).

Ólífuolían hefur marga góða kosti, ekki bara er hún góð í matargerð heldur einnig fyrir heilsuna.

Í ólífuolíu eru margar einómettaðar fitusýrur en ekki mettaðar fitusýrur og það hefur jákvæð áhrif á kólesterólmagnið í blóðinu, sem líkaminn þarfnast. Ólífuolían er góð til inntöku og einnig til að bera á húðina og í hár. Hún er góð fyrir hjartað og til að viðhalda góðri meltingu. Munið að eftir því sem olían er unnin meira því minna gildi hefur hún sem góð olía.

Repjuolían(Canola) er önnur frábær afurð til að hafa í eldhúsinu. En kaupið aðeins lífræna olíu og í dökkri flösku. Hún einnig er auðug af góðum fitusýrum sem líkaminn þarfnast og er góð í matargerðina. Áferðin er léttari og hlutlausari en  í ólífuolíunni. Samsetning fitusýranna er samskonar eins og í fiski, omega - 3

Sólblómaolía en það jafnast ekkert á við lífræna sólblómaolíu. Hún er með smá hnetukeim en samt hlutlaus í matargerð og einnig frábær í bakstur. Full af góðum fitusýrum og E vítamíni. Allar þessar olíur eru kaldpressaðar og aðeins valið það besta sem kemur af plöntunni.

Kókósolían er rosalega góð til að eiga heima við. Hún hefur einstaka eiginleika  í matargerð því hún þolir mikinn hita, svo er hún afspyrnu góð fyrir líkamann. Veljið endilega lífrænar kókósolíur. Einn af eiginleikum hennar er  t.d. að vera bakteríudrepandi og því góð til inntöku og er hún einnig talin vera góð fyrir fólk með sveppasýkingar.  Hún afar góð á húðina og sem næring í hárið. En besta leyndarmálið er að hún eykur brennslu og er því grennandi.

Best er að byrja á því að nota 2-3 tsk á dag allt upp í 3 msk yfir daginn með mat.
Þarf ekki að geymast í kæli.

Góðar olíur i salatgerðina

Hörfræolía er okkur nauðsynleg vegna þess hversu rík hún er af góðum fitusýrunum, omega 3 og omega 6. Hún er góð fyrir frumur líkamans, meltinguna og húðina. Hún er best til inntöku eða í salatsósugerð.
Allir ættu að taka inn hörfræolíu ásamt lýsi en ekki er talið gott að ófrískar konur séu að taka hana inn. Lesið ykkur nánar um þær upplýsingar á doktor.is. En um leið og barnið er komið í heiminn þá er þessi afurð bara góð fyrir mæður með börn á brjósti.

Sesamolían er einnig auðug af allskyns góðgæti fyrir likamann og til matargerðar. Þolir vel hita eins og kókósolía og er því góð til að steikja upp úr. Í austrinu er sesamolían rómuð eins og olífuolían í vestrinu. Indverjar nota hana í lækningaskyni bæði til inntöku og til að bera á kroppinn eftir því hvaða líkamsgerð þú ert. Samkvæmt fræðunum getur þú verið Vata, Pitta eða Kapha. Hún er notuð í lyf og þykir góð sem næring fyrir hársvörð.

Graskersolía hefur verið notuð til marga ára til lækninga, í inntökur ásamt því að nudda fólk með olíunni. Er talin vera ormahreinsandi, blóðhreinsandi, góð fyrir of háan blóðþrýsting og svo auðvitað rík af omega 3, 6 og 9. Það er eitthvað svo gott að nota þessa olíu ásamt olífuolíu í salatsósur.

Olíur og fitur sem ber að varast:

• smjörlíki og majones
• smjör m/viðbættum unnum olíum því þú veist ekki hvaða olíur eru notaðar
• palmatín og unnin kókósolía
• soyaolía nema að hún sé lífræn
• CLA (conjugated linolic acid)
• unnar olíur í hylkjum 
• allt djúpsteikt í olíum
• tilbúin salöt t.d. rækju- og túnfiskssalat
• þráar, gamlar olíur


Athugið:
Auðveldara er að skera niður fitu í mat með því að nota meira krydd, velja vandaðra hráefni sem hefur sterkara bragð og nota sætt eða súrt meðlæti með matnum. Með vel krydduðum mat er hægt að minnka alla notkun fituefna við matreiðslu, t.d. chilipipar, hvítlauk og karrý.

Sykur 
 
Hvítur sykur   (tvísykraður sukros).  Hreinsaður sykur sem búið er að vinna mikið og bleikja . Tómar hitaeiningar og ekki góður fyrir brisið.
 
Púðursykur (brown sugar).  Er mikið unninn sykur með viðbættu mólasses. Hefur því sömu áhrif og hvítur sykur,
 
Hrásykur. Óhreinsaður sykur. Inniheldur meira af steinefnum og B-vitamínum en hvíti sykurinn og er betri af því leytinu en hefur sömu áhrif á líkamann .
 
Náttúruleg sætuefni:
 
Ávaxtasykur (einsykran frúktósi) er sætari á bragðið en hvítur sykur og því hægt að nota minna magn af honum í t.d. bakstri.

Agave – lífræn ræktun er upprunalega ættað frá Mexíkó en bæði Inkar og Aztekar notuðu það á ýmsan hátt. Það er unnið úr sætum kjarna Agave jurtarinnar. Agavesíróp er þess vegna framúrskarandi afurð að nota  í staðinn fyrir sykur. Það hentar vel til að sæta eftirrétti, morgunkorn, ávaxtarétti, drykki og í bakstur. Líkaminn breytir á auðveldan hátt þessu sýrópi  í orku fyrir heila og vöðva. Einstaklingum með sykursýki og sveppasýkingu (candida) er óhætt að neyta Agavesíróps í hófi.

Gervisykur:
Aspartame, Canderel, sorbitol, nutrasweet og allur gervisykur er talin hættulegur heilsuinni.  Hann er t.d. notaður í alla „diet drykki”og þær mjólkurvörur sem eru merktar án sykurs, sykurlaust tyggjó, ýmis vítamín sérstaklega freyðitöflur og tuggutöflur.

Ýmislegt bendir til að gervisætuefni valdi eftirfarandi aukaverkunum ss:

Kvíðaköstum
Heilaæxli
Brjóstverkjum
Þunglyndi
Bjúgmyndun
Höfuðverk, mígreni
Ofvirkni
Svefnleysi
Liðverkjum
Minnisleysi
Vöðvaverkjum
Hjartsláttarverkjum
Húðvandamálum
Ógleði
Fyrirtíðarspennu
þessar upplýsingar eru fengnar hjá Þorbjörgu Hafsteins næringaráðgjafa og hjúkrunarfræðingi.
      Kryddum tilveruna
    Verið óhrædd að prófa ykkur áfram með góð krydd fersk eða þurrkuð.
    Það er hægt að fá dásamlega íslenskar kryddjurtir í matargerðina eins og t.d lífrænt frá Engi eða Lambhaga eða fylla garðinn sinn með kryddjurtum
    Eins og grænmeti þá búa kryddjurtir yfir góðum náttúrulegum eiginleikum öðrum enn að bragðbæta matinn okkar. En til eru góðar bækur um íslenskar jurtir  eins og t.d. bókin sem NLFÍ gaf út íslenskar drykkja og lækningajurtir . Nauðsynleg í apótek heimilina.

    Kóríander
    gott krydd fyrir meltingu og ríkt af C-vítamíni. Asíubúar notuðu jurtina til að örva sæðisfrumur . Um heim allan er kóríander notað í matargerð og alls konar drykki. Afar gott krydd i fersk salöt og salatsósur.
    Basil.
    Í gamla daga stóð jurtin basil fyrir sem tákn ástarinnar. Þegar kona setti basil plöntu i gluggakistuna var hún að tilkynna að núna mætti biðillinn koma. Eða þegar kona rétti manni búnt af basil þýddi það þeirra trúlofun.  Basil örvar matarlyst og er mjög góð í sósur, súpur alla vegana rétti og dásamleg í fersk salöt og pestó.  Fælir í burt skordýr .
    Einstaklega góð og eru til mörg afbrigði af þessari góðu jurt.

    Lárviðarlauf
    Hjá Grikkjum var jurtin góð að tyggja og í trúarathafnir. Var talin góð til lækninga t.d. við höfuðverk, til að jafna blóðsykur og vegna innihalds góðrar olíu , einstaklega bætandi fyrir meltingu og við gigtarsjúkdómum.
    Afar góð í súpur, pottrétti og fiskrétti

    Kardimommur
    eru upprunalega komar úr austrinu og voru það víkingar sem komu með þær yfir til Skandinavíu.Þær búa yfir góðum eiginleikum öðrum en þeim að nota i bakstur eins og þekkist helst hér. Ómissandi í matargerð t.d á Indlandi.En olía í fræjunum er blanda af ecalyptus , sítrónu og kamfóru og var því talin góð fyrir öndunarfærin. Einnig voru fræin notuð til að örva kynhvötina.
    Kardimommur eru góðar i drykki og er ekkert eins gott og heitt te með kardimommum í á köldu vetrarkvöldi. Að auki eru kardimommur notaðar í alla vegana rétti með austurlensku ívafi.

    Cayennapipar vex aðallega í Mexíkó, Usa, Indlandi og Nýju-Guienu. Cayennapipar er afar góður í alla matargerð. Hann er góður fyrir hjarta- og æðakerfið og eins og annað krydd er hann fullur af vítamínum. Piparinn er afar góður í  olíum (marinerast) Margar tegurnir eru til og mismunandi styrkur eftir tegundum.
    Hérna áður fyrr var hann mikið notaður til að lækna gigt.

    Það er nauðsynlegt að vera i hönskum eða bera á hendurnar olíu áður en þú skerð piparinn í sundur og fræhreinsar.
    Muna að þvo sér um hendurnar eftir að meðhöndla piparinn ferskan svo ekki fáir þú
    Kanill
    Fannst líklega i Shri Lanka  hér áður fyrr og var í fyrstu dýr eins og gull en barst fljótlega yfir til annarra landa.
    Kanill er góður i matargerð t.d. á grillað grænmeti, í drykki, te, kaffi og vín
    Og svo auðvitað í kökugerð og þannig þekkja hann flestir.  Kanill hefur góð áhrif á hormónakerfið og er því talinn nauðsynlegur að taka inn á hverjum degi. Bragðbættu hristinginn þinn með því að setja kanill saman við.
      
    Negull
    er afar harðgerð jurt, sem kemur frá Brasilíu og Madagaskar og fer  þaðan um heiminn. Sagan segir að ef þú tyggur negul þá minnki löngun í alkóhol.Einnig var hún notuð til að deyfa tannpínu. Vitað er að hún er góð fyrir meltinguna, hefur bakteríudrepandi eiginleika og ormadrífandi.
    Negull er góður i matargerð með kryddum eins og karrý, Gott er að setja hann i taupoka og binda fyrir ef sjóða á t.d.í súpu eða í sósur.
    Cumin
    Vex i Austurlöndum fjær og hefur verið notað til lækninga i margar aldir.
    Er talið best fyrir meltingasjúkdóma Var einnig notaður fyrir ófrískar konur með morgunógleði en i smáum skömmtum.Cumin er skemmtilegt i alla matargerð en i litlum mæli því hún er afgerandi .Mest hefur hún þessi jurt verið notuð í brauðgerð hér á landi.
    Fennelfræ
    Eru frábær í matargerð. Það voru Rómverjar sem breiddu út þessi fræ. Fennel er notaður í flest alla matargerð. Fennel er talið vera fræ maga og meltingar. Eftir hverja máltíð nota Indverjar fennelfræ til að fyrirbyggja einhver óþægindi i maga. Gefa skemmtilegan keim í Austurlenska rétti.

    Einiber
    Vaxa víða í Evrópu en þau voru mikið notuð til að hreinsa nýru og þá sjúkdóma sem tengjast þeim eins og t.d. blöðrubólgu. Einnig voru lauf og ber brennd til að hreinsa óhreinindi í hýbýlum manna Við þekkjum einiberin í víngerð  t.d. gin. Góð í flest alla kjötrétti, kæfur, súpur og jafnvel með ávöxtum í smáum skömmtum.
    Hér heima fáið þið kaffirlimelaufin i austurlenskum verslunum. Aðallega eru þau notuð i thai rétti en þau gefa rosa góðan keim í alla pottrétti og súpur og fara einstaklega vel með öllum austurlenskum kryddum.
    Auk þess að nota í matargerð eru þau aðallega notuð til að viðhalda fallegu og heilbrigðu hári og gott er að tyggja þau fyrir tanngóma. Einnig er gott að búa til lime te og setja smá húnang saman við .

    Sítrónugrasið
    er einstaklega gott til að nota í matargerð. Í austurlensku búðunum er hægt að kaupa þau fersk, þurrkuð eða niðurskorið í krukkum.
    Þekkist aðallega í indóneskískri matargerð. Var notað  til að lækna flökurleika og hafði róandi áhrif ef það var drukkið sem te.

    Lakkrísrót
    er sæt rót. Grikkir notuð hana við ýmsum kvillum. T.d er gott að tyggja hana því hún viðheldur góðum gómum. Lakkrísinn er róandi fyrir meltingu og góður til að viðhalda jafnægi í blóðsykri. Afurðin aðallega notuð í te, kökur og tóbak.

    Múskat
    þekktum við til marga ára hérna heima einungis í bakstur og smávegis í matargerð. Uppruni þessarar jurtar er við V-Indíu. Arabar notuðu hana eins og menn nota Viagra i dag og var sagt að ef þú nuddaðir múskati i handarkrikana þá drægi til sín aðdáendur. Múskat er ekki hneta þó i hnetuformi sé.
    Múskat er aðallega notað í þá rétti þar sem sætleikinn ræður ríkjum.
     
    Tímían
    eins og aðrar grænar jurtir vex í Evrópu og er mikið notuð i matargerð. Var einnig notuð sem jurtalyf hér áður fyrr . En tímían, rósmarín, oreganó eru jurtir sem voru mest notaðar sem bakteríudrepandi jurtir.
    Afar skemmtilegt í matargerð en er aðallega notuð með kjöti, í súpur og sósur. Tímían eða íslenskt blóðberg er eitt af því besta sem hægt er að sötra sem styrkjandi tédrykk á síðkvöldum

    Rósmarin
    hefur þessa sömu eiginleika og tímían , bakteríudrepandi og örvandi fyrir blóðrásina. Það hefur verið notað í aldir til lækninga og er rosa skemmtilegt i matar-og brauðgerð. Hér áður fyrr var rósmarinkeimur tákn fyrir vináttu og kærleika.
    Rósmarin er einnig notuð í fegrunarskyni, það er örvandi og viðheldur ferskleika húðarinnar. Auk þess að nota í mat,  er rosalega gott að setja i baðvatnið til að hressa við þreyttan líkama og sál.

    Salvía.
    Til eru mörg afbrigði af salvíu og hefur hún verið nýtt í margar aldir við margskonar athafnir.. Indjánar brendu salvíu til að halda illum öndum í burtu .
    Hún er blóðhreinsandi og bakteríudrepandi . Jurtin er skemmtileg i matargerð t.d. er bakaður laukur og salvía er æðisleg saman.

     

     

     

     



     

     

     

    Krúska - Suðurlandsbraut 12 - 108 Reykjavík - Sími: 557-5880 - kruska@kruska.is