Rauðrófusalat Gott með kryddum
Rauðrófur eru steinefnaríkar og flottar fyrir blóðbúskapinn.
Hráefni
1/2 kg rauðrófur
1 msk agavesýróp
Safi úr einni sítrónu
1 msk ólífuolía(notið endilega lífrænar)
hnífsoddur af kanil
smá salt
og söxuð steinselja til að setja saman við
Aðferð.
Þvo rauðrófurnar og sjóða með skinninu.
Það er mjög auðvelt að fjarlæga skinnið eftir á. Skera í fallega munnbita
Hræra saman olíu, salt, kanil , agave og steinselju og strá yfir rauðrófurnar
Ef þú vilt breyta til er gott að setja saman við smá broddkumen og paprikuduft.