Aduzki grænmetissúpa Góð á köldum vetrardögum
Þessi súpa er protein rík og afar góð fyrir nýrun
hráefni.
1 laukur smátt skornin
½ grasker afhýtt og kjarnin hreinsaður Skera niður i litla bita
2 gulrætur skornar i þunnar sneiðar
2 msk lífræn lífræn ólífuolía
1 tsk salt og 1 tsk pipar
2 tsk tímían
2 tsk Herbamare.Jurtakrydd.
fersk krydd eins og steinselja, kóríander, basil og 1 búnt af söxuðum vorlauk. Samanlagt handfylli og saxa niður og setja saman við rétt áður en hún er borðuð.
2 msk misó helst barley annars hvaða mísó sem til er
100 gr af maisbaunum.
200 gr af soðnum aduzki baunum. Sjóðið baunirnar eftir fyrirmælum á pakka.eða notið eina dós af aduzki baunum .
1 l af vatni og jafnvel má bæta ½ litra saman við allt eftir hversu þykk þú vilt hafa súpuna.
Setjið allt saman í pott nema mísó og fersku söxuðu jurtirnar.
Látið suðuna koma upp. Lækkið hitan og leyfið súpunni að malla í 30 mín. Slökkvið undir.
Hrærið mísóið saman við örlítið vatn þannig að úr verði þunnur vökví.og setjið út í súpuna.Passið að súpan sjóði ekki.
Kreistið saman við súpuna safa úr ferskum 5 cm engifer og blandið fersku jurtunum útí.
Smakkið hana til ef ykkur finnst vanta smá meira Herbamare.
Þessi súpa er góð með smá hrísgrjónum og eða fersku salati