17.4.2009 10:38
Salsa með íslensku byggi

Lífræna byggið hans Eymundar er gott
  • 3 dl bankabygg
  • 300 gr tómatar skornir í litla bita
  • 300 gr agúrka skorin i litla bita
  • 1 stk rauðlaukur smátt saxaður
  • 2 hvítlauksgeirar saxaðir
  • 1búnt ítölsk steinselja söxuð
  • handfylli af kóríander saxaður
  • 3 cm ferskur engifer afar smátt saxaður
  • ólífuolía
  • salt og pipar eftir smekk
  • appelsínusafi og safi úr tveimur lime
  • Aðferð.
  • Hristið sósuna saman . Skolið byggið vel og síðan látið suðuna koma upp , slökkvið undir setjið lok á og látið standa i 20 mín. Þá á byggið að vera tilbúið. Kælið niður og blandið öllu út í byggið . Hrærið varlega og skreytið Þessi salsa er best að gera einum degi áður en hún er borin fram. Kryddin ná að brotna betur.