16.4.2009 10:08
Mangó-súkkulaði-engifer kaka
án hveiti
Dásamleg
1 msk smjör
2 tsk kakóduft
1 plata af dökku súkkulaði smátt saxað
2 egg
2 msk hrásykur
2 msk smátt saxaðar valhnetur
1 mangó afhýddur og þegar búið er að hreinsa kjötið frá kjarnanum þá að smátt saxa hann
(Það er líka handhægt að kaupa frosinn mangó og eiga í frysti)
2 cm ferskur engifer rifin niður og safinn kreistur og settur yfir mángóávöxtinn.
Aðferð
Hitið ofninn í 190°C . Setjið bökunnar pappír á botninn á hringlaga kökuformi
Smyrjið hliðarnar á forminu.
Þeytið vel saman eggin þar til verða létt og bætið þá sykri saman við . Haldið áfram að þeyta. Bræðið súkkulaðið við lágan hita í smjörinu og hræra kakóduftinu saman við.
hellið hægt saman við eggjahræruna
því næst koma saxaðar valhnetur. Blanda öllu saman og setja í kökuformið og inn í ofn.
Baksturinn tekur ca 30 -40 mín eða þar til að hún stífnar. Kakan er mjúk í miðju .
Kælið niður . Snúið kökunni við á bakkanum og saxið mangóávöxtum ofná og berið fram með þeyttum rjóma. Dásamleg