15.4.2009 10:39
Hjónabandsæla Tótu Sveins
fyrir venjulegt köku form
Þessi kaka er alltaf á borðum í góðum veislum . Hún er æðisleg300 gr. spelthveiti fyrir venjulegt kökuform
300 gr. tröllahafrar
100 gr. hrásykur
150 gr. smjör
150 gr. sólblóma-repjuolíu lífræna
1 tsk. vínsteinslyftiduft
1/2 tsk. salt
300 gr. góð sykurlaus sulta (t.d. bláberja)
Aðferð:
Öllu hráefninu(nema sultunni) er blandað vandlega saman með sleif þannig að úr verði þykkt deig.
Þá er rúmlega helmingnum af deiginu þjappað vel í smurt eldfast form. Sultunni smurt þar ofan á og að síðustu er restinni af deiginu sáldrað yfir sultuna. Bakist í ofni á 170°C í 30 mín.
Kakan er síðan látin jafna sig um stund áður en hún er skorin.
Bragðast mjög vel hvort heldur með eða án rjóma.