14.4.2009 13:47
Jamakia svartbaunapottréttur

Góður réttur með kús-kús salati eða hýðishrísgrjónum.
  • 250 gr af soðnum svötum baunum(sjá meðhöndlun bauna)
  • 1 msk olía
  • 1 stór laukur smátt saxaður
  • 1 hvítlaukur smátt saxaður
  • 1 tsk sinnepsduft
  • 2 msk agavesýróp
  • 1 msk soyjasósa
  • ½ tsk chilli duft
  • 1 tsk broddcumin
  • 1 rauð paprika smátt skorinn
  • 1 gul paprika smátt skorinn
  • 1 stk sæt kartafla smátt skorinn
  • Salt og pipar
  • 1 krukka af lífrænni tómatasósu
  • Smá vatn þó þannig að sósan sé sæmilega þykk
  • Aðferð.
  • L
  • étt steikja laukinn, hvítlauk , krydd, papriku og sæta kartöflu . Malla í góðan tíma á lágum hita eða þar til að laukurinn og paprika er orðin mjúk Setja útí tómatsósuna og vatn og baunirnar og halda áfram að malla í 15 mín. Bragbæta og smakka til með sýrópi og soyjasósu. Saxa fullt af ferskum jurtum og setja saman við.