14.4.2009 10:43
Skemmtilegt ananas salat

Þetta salat er gott með fiskréttum
  • 2 msk olía
  • 350 gr ananas (ferskur)flysjaður og skorin í munnbita
  • 1 laukur smátt skorin
  • 350 gr hvítkál skorið í strimla
  • 100 gr ristaðar möndlur eða cashew
  • Salt og pipar og 1msk agavesýróp
  • 2tsk tímian eða ferskt rósmarin
  • Aðferð
  • Létt steikið hvítkálið og lauk eða þar til að laukurinn er meyr. þá kemur ananasinn og krydd, Leyfið réttinum að malla og hrærið í svo ekki brenni. Stráið hnetunum yfir rétt undir lokin.