14.4.2009 10:34
Franskur pottréttur 4-6manns

þessi er góður með ferskum kryddjurtum og parmasanosti
  • 400 gr af hvítum soðnum baunum(sjá meðferð á baunum)
  • 2 laukar skornir í sneiðar
  • 1 tsk anis
  • 3msk olía góð sólblómaolía
  • 2 stk marðir og smátt saxaðir hvítlauksgeirar
  • 2 stk púrrulaukur smátt sneiddur
  • 4 stk gulrætur skornar í sneidar frekar þunnar
  • 1 box af sveppum sveppirnir skornir i fjóra bita
  • 1 krukka af góðri lífrænni tómatasósu
  • 2 tsk paprikuduft
  • 1 msk tímían
  • 1 msk soyjasósa lífræn
  • 2 msk söxuð steinselja
  • 200 gr af brauðmynslu
  • 1 poki af osti og auðvitað er líka gott að strá yfir parmasan osti
  • Salt og pipar eftir smekk
  • 100 ml vatn
  • Byrja á því að létt steikja laukinn bæta hvítlauk saman við og krydda .
  • Restin af grænmetinu sett saman við ásamt tómatsósunni og fersku kryddum og vatni.
  • Soðið í 15 mín þá að hræra baununum saman við. Hafið ofninn tilbúin á 200 °C setjið réttinn í eldfast mót inn í ofn með brauðmylsnu ofaná og smá osti Bakið í 10 min. Það er einnig gott að saxa fullt af grænum kryddjurtum og strá yfir þegar rétturinn kemur út úr ofninum ásamt parmasan osti.