14.4.2009 09:58
Gado-Gado
Afar góður grænmetisréttur ásamt agúrkusalati í jógúrtsósu
250 gr hvítkál skorið í strimla
4 stk gulrætur skornar í sneiðar ½ cm þykkar
1 askja baunaspírur
1 stk rófur skornar í litla bita
1 stk laukur skorin i sneiðar.
4 kartöflur skornar í báta
Saxaður vorlaukur og steinselja sett yfir
Smá olía
1 hvítlaukur
2 tsk cumin
½ tsk chilli
3msk hnetusmjör
1 msk limesafi
1 msk agavesýróp
vatn til að þynna sósuna
100 gr af soðnum smjörbaunum
Aðferð
Grænmetið nema baunaspírurnar er bakað í ofni í 30-40mín stráð smá olíu og salti yfir og sett inn í 190°C.
Á meðan grænmetið er i bakstri skal búa til sósuna
Byrja á því að létt steikja hvítlaukinn . Setja kryddin út í blanda vel saman. Takið pottinn af þegar hnetusmjörið og limesafinn er hrært út í ásamt
1 bolla af vatni til að þynna sósuna. Hérna koma baunirnar inn í ef þið notið þær en þá þynnið þið sósuna aðeins meir,
og skreytið með vorlauk og baunaGrænmetið kemur út í sósuna og spírur.
Berið fram með limebátum og kóríander