14.4.2009 09:29
Karabískur núðluréttur
Dásamlega gott með heimagerðu hvítlauksbrauði. 450 gr núðlur hvað tegund sem hentar en best þykja mér Sobanúðlur
2-4 msk olía
1 stk stór sæt kartafla afhýdd og skorinn í strimla fingurstóra
2 stk gulrætur skorinn í strimla
1 stk laukur skorinn í báta
Helmingur af hálfum haus hvítkál smátt saxað í þunna strimla
2 vorlaukar smátt saxaðir (rétturinn er skreyttur með vorlauknum)
1 paprika hvaða litur sem er skorinn i þunna strimla
Handfylli af sætum grænum baunum helmingaðar.
2 msk rifinn engifer og er safinn kreistur útí réttinn
1 hvítlauksgeiri
Salt og 1 tsk smá cayennapipar
1 msk tamarisósa(lífræn soyjasósa)
½ dós af kókósmjólk .Hrista hana áður. sett útí rétt undir lokin
Aðferð:
Sjóða núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum og kæla niður. Setja til hlíðar á meðan grænmetið er að steikjast.
Skerið núðlurnar í sundur nokkrum sinnum.
Auðveldara að blanda þeim saman við grænmetið þannig.
Hita olíuna vel og byrja á því að létt steikja laukinn og hvítlauk síðan sætu kartöflurnar mögulega þarf að bæta við olíu og hitinn á ekki að vera mjög mikill. Síðan kemur restin af grænmetinu og undir lokinn er kókosmjólkin sett saman við og núðlurnar. Skreyta með kóríander og lime bátum og vorlauk.